Fílaferð í bæinn

Varkala er ekki bara strönd þar sem túrhestar flatmaga undir klettóttri hlíð. Varkala er líka heiti á bæ þar sem búa venjulegir Indverjar með fullt af litlum markaðssvæðum og götum sem iða af lífi. Við fórum þangað í bíltúr að skoða og strjúka fíla. Við fengum líka að setjast á fílsbak og vorum teymd dálítinn spotta.

Fílarnir voru tveir kvenfílar sem fengu að snæða litla indverska banana áður en haldið var af stað. Á sama stað og fílarnir voru tjóðraðir var rekið vefverkstæði þar sem fjórir léttklæddir og sterklega byggðir karlmenn voru að handvefa risastór hampgólfteppi. Þá vildi bílstjórinn að við færum að sjá tvo fílsunga í næsta nágrenni. Þegar þangað kom rákum við hausinn í kasjúhnetutré og sáum föður fílsunganna. Risastóran og voldugan karlfíl með æðislegar tennur.

Á leiðinni til baka áðum við um stund á krossgötum í Varkala þar sem allt iðaði af mannlífi. Lítill markaður vakti athygli okkar þar sem konurnar höndluðu með grænmeti í litlum skömmtum og karlarnir voru hreistraðir af fiski.

Jón

Hugleiðing í Varkala

Varkala er lítil klettótt strönd við Arabíulóann. Heilmikill túrismi  er hér, sölubásar sem selja margir svipaða vöru og nuddmenning er hér áberandi í nafni  Ayur Veda sem eru heilbrigðisvísindi Indverja. Ströndin er afar falleg og fjöldi fólks sem hleypur til og frá í öldunum. Nú sitjum við á kaffihúsi sem ber heiti sænsku hljómsveitarinnar Abba. Skýringin er sú að Svíar eru hér algengir og Þjóðverjar á fertugsaldri. Við horfum til hafs og njótum veitinganna og hitans sem hefur svipt okkur svo gjörsamlega inn í aðra veröld en við erum vön á Íslandi á þessum tíma.

Hótelið okkar hér í Varkala heitir Deshadan og uppfyllir okkar vonir og óskir í hvívetna. Við sofum eins og steinar á næturna og þegar morgnar bíður okkur yndislegur morgunverður og sundlaugabakki fyrir utan herbergisdyrnar. Indverjar eru sérlega þjónustulundir og brosmildir. Þeir vinna saman af slíkum heilindum að furðu sætir. Herbergin eru þrifin hátt og lágt og fyrir öllum okkar óskum er séð. Allur matur sem við höfum fengið er guðdómlegur og bjórinn King Fisher rennir honum vel niður.

Flugfélagið sem flaug okkur hingar heitir líka King Fisher og er algjörlega yndislegt.

Í kvöld borðum við síðustu kvöldmáltíðina hér í Varkala. Rögnvaldur leikur Júdas en Völundur ætlar að vera Bjartur í Sumarhúsum. Á morgun förum við í fljótabát þar sem við gistum og siglum í einn sólarhring á leið okkar til Kovalum sem er næsta strönd lífsins.

Komin til Kerala

Nú sitjum við í sólinni. Komum í gær á hótelið okkar eftir smá seinkun í fluginu. Umferðin er brjáluð og sólin líka. Fílar á morgunn.

Setjum inn nokkrar myndir hérna í bili. Vonandi verður netsambandið betra fljótlega.

Kveðjur

Védís og Völundur

Mumbai

_MG_5563

Svona er útsýnið út um herbergisgluggann hjá okkur Pabba, Nökkva og Völundi

Við erum á nýbyggðu hóteli í Mumbai og fengum frábæra þjónustu þangað. Hótelið var opnað núna í sumar. Þegar við komum út af flugvellinum í Mumbai tók á móti okkur bílstjóri sem við höfðum pantað. Hann ásamt tveimur öðrum ók okkur á hótelið í þremur flottum bílum. Gæjalegum BMW og flottum jeppum.

Við flugum með King Fisher frá LHR til BOM en það eru skammstafirnar fyrir flugvellina í London og Mumbai. Maturinn og þjónustan var alveg frábær. En það var dáldið erfitt að ferðast svona lengi.

Þegar maður lítur út um gluggann sér maður flotta strönd og flott Arabíu-hafið. Fólk er á gangi meðfram ströndinni og pálmatré og fuglar á flugi.

Þar gamall allsber kall að baða sig og fólk í göngutúr. Flugferðin til Mumbai var erfið og löng.

Ferðalagið hafið

Við  erum á hótelinu í Keflavík og þurfum að vakna að bakara tíma við förum á flugvöllin á morgun klukkan 7 og skrifum við þá meira.

kveðja Indlandsfarar

16. nóvember

Einn mánuður í brottför og hann verður örugglega fljótur að líða. Allir vel bólusettir og pappírsvinna vel á veg komin. Einn flugmiði er þó enn í lausu lofti…

prufa

alltaf að testa allt og þá segir maður svona einsog söngvarnir í míkrófónana, einn tveir, einn tveir, er þetta að virka, einn tveir, einn tveir