Það er enginn leið að komast undan umferðinni á Indlandi. Maður er í henni miðri. Oftast gengur hún hratt fyrir sig og ökutækið hlykkjast eins og ormur á milli hinna ökutækjanna. Stundum fer umferðin hinsvegar hægt. Þá hafa myndast hnútar þar sem ættu kannski að vera hringtorg eða allt er stopp við lestarteinana. Nökkvi segir úr aftursætinu að það gildi engar umferðareglur á Indlandi. Um þetta myndast samræður milli áttmenninganna í bílnum og niðurstaðan er sú að það gilda mjög skýrar reglur í umferðinni á Indlandi. Maður þarf bara að kunna þær og fara eftir þeim.

Í umferðinni á Indlandi eru sex aðalpersónur: 1) gangandi vegfarendur 2) átórikksjó eða vélknúin þríhjól 3) mótórhjól oftast reiðandi einhvern eða einhverja farþega 4) venjulegir fólksbílar og borgarjeppar 5) stórir og þunglamalegir vöruflutningabílar og strætóar 6) húsdýr.

Aftan á mörgum ökutækjum stendur: sound horn sem er eiginlega ósk um að bílflautan sé notuð í þeim tilgangi að liðka fyrir umferð. Öll ökutæki sækja í það að vera á miðri vinstri akrein þangað til annað ökutæki nálgast og vill komast fram úr. Þá víkur það jafnt og örugglega til hliðar eftir að bílflautan hefur verið þeytt.

Rennslið í umferðinni er stöðugt. Það er ekkert um ástæðulaust hik eða stopp. Þegar gangandi vegfarandi, þríhjól og jeppi mætast á sama punktinum hreyfa allir sig áfram þangað til einhver þessara þriggja fær forgang. Það er stöðug hreyfing á öllu ekki ósvipað því og þegar maurarnir hafa fundið dauða flugu á svefnherbergisgólfinu.

Jón

MVI_4860.AVI