Kanyakumari heitir syðsti oddi Indlands og þangað fórum við í dag. Einmitt þennan sama dag fyrir 5 árum kom hin hljóðláta flóðbylgja Tsunami æðandi þegjandi og hljóðalaust og sundraði lífi milljóna manna. Í dag var það bara minningin sem rótaði huga mannanna. Veiðimenn sátu við spil hjá bátunum og netahrúgunum og þúsundir ferðamanna biðu eftir ferjunni en við létum okkur nægja útsýnið og stemminguna sem var hljóð.

Á leiðinni suðureftir taldi Vala 99 geitur, 69 nautgripi og 16 hænur. Hundar voru ótaldir eins og bananatrén, hrísgrjónaakrarnir,  fögur fjöllin og hið ólýsanlega fjölskrúðuga mannlíf sem er allsstaðar og allt um kring hvert andartak! Það var gott að koma aftur heim á vinalega litla hótelið okkar og bráðum koma hér myndir af ævintýrum dagsins. Lífið er yndislegt!

Alda