Við fórum úr gististað okkar til þess að láta sérsauma föt handa okkur hjá góðum klæðskera. Eftir það fórum við  í fallegan vita og var Nökkvi voðalega lofthræddur, en annars voru allir að dást yfir fallegheitunum á þessari gömlu hippaströnd úr vitanum. Þetta var frábært fallegt útsýni og maður gat séð allt, maður sá oná öll risastóru húsin. Vitinn er svona 35 metra hár en mér sýnist hann vera alveg 70 metrar. Skemmtilegur dagur og er gott að enda hann með því að fara á notalegan veitingastað og borða góðan mat.

kveðja Nökkvi