Jólasólhlíf

Það er aðfangadags morgunn á Vitaströndinni í Kovalam og jólasólhlífin kemur í stað jólatrésins. Öldurnar koma hver af annarri utan af hafi og vilja leika. Við leigjum okkur bekki til að liggja á og bretti til að sigla ölduna. Svo gleypum við stundum sjó. Indverjar selja okkur ávexti og vatn og sumir þeirra koma af hafi á litlum eintrjáningum með stóra sverðfiska. Krákurnar syngja jólalögin allt í kringum okkur og Vala tekur undir í Nú er Gunna á nýju skónum. Hér er allt á iði bæði mannfólk og maurar. Við ætlum í leiðangur að kaupa litlar jólagjafir sem við gefum hvert öðru í kvöld. Þá verður líka snæddur sameiginlegur jólakvöldverður á hótelinu okkar og jólalögin sungin.