Indversk strönd á Þorlákssmessu

Nú sitjum við með “fresh lime sode, sweet, not salty” á netkaffinu í Kovalam. Við tókum í gamni mynd með tölvunni, og sínum hana hérna. Á ströndinni liggja túristarnir á leigubekkjum, með leigusólhlífar og fara stundum út í sjó á leigu-búk-brettum.

Þeim fjölgar ört þessar mínúturnar, nú er sólin að renna úr hádegisstað og verður bærilegri fyrir vikið. Ávaxtasölukonurnar ganga á milli leigubekkjanna og bjóða ananas á góðu verði, sumar á tvöföldu-góðu verði og allir brosa.

Nökkvi og Völundur