Smá sólar pása hjá mér.sit á annarri hæð í kaffistað, á svölum.Helmingurinn af liðinu buslar í öldunum og það er sko ÆÐI, maður getur látið þær fleyta sér af stað og það eru engar tvær eins. Sé litla rauða sundbolinn á háhesti á stóra bróður, það hlýtur líka að vera ÆÐI. Amma er í uppáhaldsstellingunni sinni, sólbaðsstellingunni og les Agöthu, það er komin kókoshneta á borðið með appelsínu í og röri…