Allt hefur sinn tíma og við öllu má búast. Þessir frasar fá merkingu á Indlandi. Við höfðum fyrir löngu planað að fljúga frá höfuðstað Kerala Thirumvananthapuram sem í daglegu tali er nefnd Trivandrum þann 29. desember kl. 16.00 að staðartíma sem þýðir 9.30 að íslenskum tíma. Svo fréttum við það að indverska stjórnarandstaðan hafði skipulagt verkfall þennan sama dag frá kl. 6.00 til 18.00 og af þeim ástæðum þurftum við að fara út á flugvöll í síðasta lagi kl. 5.00 um nóttina. Og þar biðu okkar engin sérstök þægindi.

Við reyndum að leigja gistirými við flugvöllinn en það gekk ekki. Það sama var í gildi og fyrir 2009 árum þegar María og Jósef beiddust gistingar. Að endingu neyddumst við til þess að fara beint á flugvöllinn og bíða þar utandyra því Indverjar hleypa ekki innanlandsfarþegum í flugstöðvarnar nema rétt fyrir brottför. Við fundum okkur skot og komum farangrinum fyrir. Settumst í biðstellingar og reyndum að hvíla okkur. Fundum fljótlega að heill herskari af moskítóflugum var þarna líka. Alda fékk alveg sérstaka meðferð í það sinnið. Kláðinn af bitum þessara flugna getur verið óbærilegur.

Þegar við loksins komumst inn í þessa litlu og sætu flugstöð gekk allt vel fyrir sig og fljótlega vorum við komin í loftið til Bangalore. Þar beið okkar nútímaleg og stór flugstöð með öllum þægindum. Fljótlega var haldið áfram til Kalkútta með stærri flugvél og tók sú ferð tvo og hálfan tíma. Lent kl. 23.00 að staðartíma og og eftir samningaviðræður og klukkutíma bílferð komust við um miðnætti á Fairlawn hótelið við Sudder street sem er best geymda leyndarmál bengalskrar hótelmenningar.

Nú sitjum við á Astor hótel við Shakespeare Sarani þar sem við héldum upp á áramótin með höttum og knallettum og ótrúlegri götumenningu þar sem bílar þjappa sér enn betur en ástfangin pör. Allir þeyta bílhornin og sumir troða sér sér út um gluggana og dilla sér í takt við götumúsíkina. Maður kemur til mín og segir: Happy new year. Where are you from? Eftir miðnætti opnuðum við kampavínsflösku sem Gulla í Hannyrðabúðinni kom með frá Íslandi. Loksins gátum við tæmt árið og þessa flösku sem hafði ferðast með okkur alla þessa leið. Allt hefur að sjálfsögðu sinn tíma og við öllu má búast af Gullu í Hannyrðabúðinni.

Jón